Johann Bernoulli
Appearance
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/1d/Johann_Bernoulli.jpg/220px-Johann_Bernoulli.jpg)
Johann (eða Jean) Bernoulli (27. júlí 1667 – 1. janúar 1748) var svissneskur stærðfræðingur. Hann var bróðir Jakobs Bernoullis og faðir Daniels Bernoullis. Johann lagði ýmislegt til mála í örsmæðareikningi, meðal annars uppgötvaði hann regluna um markgildi ræðra falla, þegar bæði teljari og nefnari stefna á núll eða á óendanlegt, sem ranglega er kennd við l'Hôpital. Sagt er að Jóhann hafi verið skuldugur greifanum l'Hôpital og að hann hafi sent honum þessa reglu og sönnun hennar sem greiðslu upp í lán.